smi24.net

Icelandic Mountain Bike Club

Новости от Russia24.pro

Russia24.pro Каталог
Апрель
2024
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30

Все новости

Pökkunarkvöld í Klúbbhúsinu Brekkustíg 2

Icelandic Mountain Bike Club 

Þá er komið að hinu árlega pökkunarkvöldi. Við munum hittast kl 19:00 fimmtudaginn 14. mars og byrja á því að fá okkur pizzu og gos. Svo pökkum við Hjólhestinum niður ásamt skírteinum þeirra sem eru búin að greiða félagsgjöldin. Margar hendur vinna létt verk.  Pizzurnar eru í boði Fjallahjólaklúbbsins.  Gott ef fólk merkir mætingu við þennan viðburð, svo við getum áætlað magn af pizzum.

Kynningarfundur í aðstöðu Reiðhjólabænda 22. feb.

Icelandic Mountain Bike Club 

Kæra hjólafólk ! Fimmtudaginn 22. febrúar  kl . 20  verður haldinn kynningarfundur í aðstöðu Reiðhjólabænda við Sævarhöfða 31. Þar er ætlunin að sýna meðlimum Fjallahjólaklúbbsins aðstöðuna.

Samstarfshugvekja frá Reiðhjólabændum

Icelandic Mountain Bike Club 

Samstarfshugvekja til hjólreiðafólks

Í langan tíma hefur ótrúlega mikið og gott starf verið unnið við skipulagningu og framkvæmd ýmissa viðburða á vegum Fjallahjólaklúbbsins. Margir hafa rétt klúbbnum hjálparhönd við ýmis tækifæri en mikið af innra starfi félagsins hefur þó hvíld á fáum herðum, stundum kannski of fáum. En sú staðreynd að það reynist sífellt erfiðara að fá fólk almennt til að taka virkan þátt í félagsstarfi er alls ekki bundin við Fjallahjólaklúbbinn.
Margt fólk... Читать дальше...

Ofsi hjól veitir nú félagsmönnum afslátt

Icelandic Mountain Bike Club 

Félagsmönnum bíðst nú 5% afsláttur hjá Ofsa hjól vefverslun. Fyrir neðan er kynning á fyrirtækinu og nánari upplýsingar á ofsi.is

Svíþjóð – Danmörk 2022

Icelandic Mountain Bike Club 

Miðvikudagur, 22. júní

Nú var komið að hjólaferð ársins erlendis, Svíþjóð og Danmörk, ekki það að ég sé að fara utan að hjóla á hverju ári. Ég gat „platað“ einn félaga minn til að skutla mér upp á flugvöllinn, við fórum að heiman um hálf átta og rúmlega ellefu í loftið. Það var góður meðvindur því rúmlega þriggja tíma flugið tók aðeins um tvær og hálfa klst. Guðrún og Guðbjartur tóku á móti mér á vellinum í Köben og strax var farið í að setja hjólið saman og gera það klárt fyrir lestarferðina til Gautaborgar. Читать дальше...

Helgarferð - Eurovision – Húsafell

Icelandic Mountain Bike Club 

Samkvæmt hefð förum við í hjólaferð um Eurovision helgina. Í ár ætlum við í Húsafell, gistum þar í bústað með heitum potti. Við höfum bústaðinn fram á mánudag, um að gera að taka langa helgi ef hægt er.





СМИ24.net — правдивые новости, непрерывно 24/7 на русском языке с ежеминутным обновлением *